Biskup sendir Siðmennt opið bréf

Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, hefur sent frá sér opið bréf til Siðmenntar, félags siðrænna húmanista  á Íslandi, og segist hafa leyft sér að nota orðið hatrammur um þann málflutning ýmissa talsmanna félagsins, að tala niðrandi um trú og krefjast banns við helgileikjum í skólum.

Bréf biskups er eftirfarandi:

„Siðmennt, Félag siðrænna húmanista á Íslandi, hefur sent mér opið bréf og krafist opinberrar afsökunar minnar á ummælum í viðtali í blaðinu 24 stundir á dögunum. Um það vil ég segja þetta:

Félagar Siðmenntar hafa undanfarið gengið hart fram gegn kirkju og kristni með einstrengislegum málflutningi og kröfum um boð og bönn. Félagið hefur sent bréf og yfirlýsingar, til dæmis til yfirvalda menntamála, þar sem amast er við m.a. skoðunarferðum í kirkjur, að börn séu látin „lita eða teikna trúarlegar myndir" og „tryggt verði að greinarmunur sé gerður á sagnfræði og goðsögnum í kennslustundum." Ýmsir talsmenn Siðmenntar hafa leyft sér þann málflutning að tala niðrandi um trú og að krefjast banns við helgileikjum og jólaguðspjalli í skólum. Ég leyfi ég mér að nota orðið „hatrammur" um þennan málflutning.

Í tillögum sem Siðmennt lagði fram á fundi Menntaráðs Reykjavíkur í febrúar 2005 segir: „Í stað þess (leturbreyting KS) að einskorða kennslu við kristnifræði er heillavænlegt að kenna almenna siðfræði, heimspeki og gagnrýna hugsun."

Ég fagna því ef Siðmennt vill nú styðja kristinfræðikennslu og trúarbragðafræðslu í skólum, eins og fram kemur í opnu bréfi félagsins til mín. Það er sannarlega gleðilegt ef Siðmennt vill taka þannig höndum saman við Þjóðkirkjuna. Aldrei var brýnna en nú andspænis vaxandi fjölmenningu að efla slíka fræðsla í skólunum og að auka menntun kennara í þessum efnum. Trúarbragðafræðsla er afar takmörkuð á framhaldsskólastigi og þar er engin kristinfræðikennsla. Þar skera Íslendingar sig úr í samanburði við nágrannalöndin, og er það miður. Þannig teflum við því í tvísýnu hvort upprennandi kynslóðir verði læsar á evrópska menningu. Ég legg mikla áherslu á að trúarbragðafræðsla, kristinfræði og fræðsla um ólík lífsviðhorf fari fram á faglegum forsendum skólans og að fyllsta tillit sé tekið til mismunandi lífs- og trúarskoðana af virðingu og umburðarlyndi. Það gerist ekki með því að útiloka hinn trúarlega þátt og kærar hefðir eins og hatrammlega hefur verið kallað eftir í umræðunni undanfarið.

Karl Sigurbjörnsson"

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert