Ákæra ríkissaksóknara

Hér fer á eftir í heild ákæra sem ríkissaksóknari gaf út 6. maí síðastliðinn á hendur fimm einstaklingum:

Ríkissaksóknari gjörir kunnugt:

Að höfða ber opinbert mál fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur á hendur

Árna Johnsen,

kennitala 010344-4259,

Höfðabóli, Vestmannaeyjum,

Birni Kristmari Leifssyni,

kennitala 010759-4049,

Árlandi 8, Reykjavík,

Gísla Hafliða Guðmundssyni,

kennitala 051157-2309,

Melahvarfi 5, Kópavogi,

Stefáni Axel Stefánssyni,

kennitala 291170-2939,

Hlíðarhjalla 16, Kópavogi, og

Tómasi Tómassyni,

kennitala 191044-2079,

Vaglaseli 2, Reykjavík,

fyrir hegningarlagabrot eins

og nánar greinir hér á eftir.

I.

Ákærða Árna Johnsen einum er gefið að sök fjárdráttur, umboðssvik, rangar skýrslur til yfirvalda og mútuþægni í opinberu starfi sem alþingismaður, formaður byggingarnefndar Þjóðleikhússins og formaður byggingarnefndar Vestnorræna ráðsins, Brattahlíðarnefndar.

A. Ákærði Árni er sakaður um fjárdrátt í opinberu starfi sem formaður byggingarnefndar Þjóðleikhússins með því að hafa dregið sér;

1. eldhús- og baðinnréttingu sem hann tók út hjá Samnorræna, Reykjavík, í viðskiptareikning Ístaks hf. samkvæmt beiðni Ístaks hf. til sölufyrirtækisins. Ákærði fékk fyrirsvarsmann sölufyrirtækisins til að tilgreina úttektina sem hillueiningar og þilplötur á reikningi dagsettum 28. janúar 1997 að fjárhæð kr. 326.000. Ístak hf. krafði reikningsfjárhæðina hjá byggingarnefnd Þjóðleikhússins með reikningi dagsettum 19. febrúar 1997 að viðbættu 15% álagi. Ákærði endurgreiddi fjárhæðina 13. ágúst 2001 án álagsins.

2. ýmis hreinlætistæki og pípulagningaefni sem hann tók út hjá Tengi ehf., Kópavogi, samkvæmt reikningi dagsettum 8. júlí 1997 að fjárhæð kr. 231.810 og lét greiða af fjárveitingum byggingarnefndarinnar. Ákærði endurgreiddi fjárhæðina 13. ágúst 2001.

3. fánastöng, límtrésbita, sem hann tók út hjá Stálsmiðjunni hf., Reykjavík, í viðskiptareikning Ístaks hf. samkvæmt beiðni Ístaks hf. til sölufyrirtækisins. Ístak hf. krafði fjárhæð reiknings Stálsmiðjunnar hf., dagsetts 19. mars 1999, kr. 39.999, hjá byggingarnefnd Þjóðleikhússins með reikningi dagsettum 30. september 1999 að viðbættu 15% álagi. Ákærði endurgreiddi fjárhæðina 13. ágúst 2001 án álagsins.

4. álstiga sem hann tók út hjá Húsasmiðjunni hf., Reykjavík, í viðskiptareikning Ístaks hf. samkvæmt beiðni Ístaks hf. til sölufyrirtækisins. Ístak hf. krafði fjárhæð reiknings Húsasmiðjunnar hf., dagsetts 7. apríl 1999, kr. 12.047, hjá byggingarnefnd Þjóðleikhússins með reikningi dagsettum 30. september 1999 að viðbættu 15% álagi. Ákærði endurgreiddi fjárhæðina 13. ágúst 2001 án álagsins.

5. þjóðfána og veifu sem hann tók út hjá Íslensku fánasaumastofunni, Hofsósi, samkvæmt reikningi dagsettum 16. ágúst 1999 að fjárhæð kr. 247.133 og lét greiða af fjárveitingum byggingarnefndarinnar.

6. verkpalla sem hann tók út hjá Verkpöllum ehf.-Brimrás, Reykjavík, í viðskiptareikning Ístaks hf. samkvæmt beiðni Ístaks hf. til sölufyrirtækisins. Ístak hf. krafði fjárhæð reiknings Verkpalla ehf.-Brimrásar dagsetts 6. september 1999, kr. 249.245, hjá byggingarnefnd Þjóðleikhússins með reikningi dagsettum 30. september 1999 að viðbættu 15% álagi. Ákærði endurgreiddi fjárhæðina 13. ágúst 2001 án álagsins.

7. tvær jólaljósaseríur sem hann tók út hjá Dengsa ehf., Reykjavík, samkvæmt reikningi dagsettum 22. desember 2000 samtals að fjárhæð kr. 217.257 og lét greiða af fjárveitingum byggingarnefndarinnar.

8. timbur sem hann tók út hjá Húsasmiðjunni hf., Reykjavík, í viðskiptareikningi Ístaks hf. samkvæmt beiðni sem meðákærði Tómas Tómasson gaf út til sölufyrirtækisins. Fjárhæð tveggja reikninga Húsasmiðjunnar hf. vegna úttektarinnar dagsettra 2. janúar 2001, samtals kr. 251.857, krafði Ístak hf. hjá byggingarnefnd Þjóðleikhússins með reikningi dagsettum 28. febrúar 2001 að viðbættu 15% álagi. Ákærði endurgreiddi fjárhæðina 13. ágúst 2001 án álagsins.

9. 300 stk. óðalskantsteina og 30 stk. ótalssteina sem hann tók út hjá BM Vallá, Reykjavík, samkvæmt reikningi dagsettum 11. maí 2001 að fjárhæð kr. 160.978 og lét greiða af fjárveitingum byggingarnefndarinnar. Reikningurinn var áritaður af Framkvæmdasýslu ríkisins 17. júlí 2001 um endurgreiðslu.

10. timbur, saum o.fl. sem hann tók út hjá BYKO, Kópavogi, samkvæmt reikningi dagsettum 23. maí 2001 að fjárhæð kr. 400.930 sem hann lét stíla á Þjóðleikhúsið vegna leikmunageymslu og færa til skuldar á viðskiptareikningi Þjóðleikhússins hjá BYKO. Reikningurinn var síðar bakfærður af reikningi Þjóðleikhússins og hefur ákærði greitt reikningsfjárhæðina.

11. þéttidúk og lím sem hann tók út hjá Gróðurvörum ehf., Reykjavík, samkvæmt reikningi dagsettum 2. júlí 2001 að fjárhæð kr. 173.658 sem hann lét stíla á byggingarnefnd Þjóðleikhússins vegna bílaplans og smíðaverkstæðis Þjóðleikhússins. Reikningnum var framvísað hjá Framkvæmdasýslu ríkisins en reikningsfjárhæðin var ekki greidd af fjárveitingum byggingarnefndarinnar.

12. timbur, þéttiull og aðrar byggingavörur sem hann tók út hjá BYKO, Kópavogi, samkvæmt reikningi dagsettum 3. júlí 2001 að fjárhæð kr. 1.016.069 í nafni byggingarnefndar Þjóðleikhússins vegna leikmunageymslu. Reikningsfjárhæðina greiddi ákærði 20. júlí eftir að mál þetta kom upp.

13. þéttidúk sem hann tók út hjá Fagtúni ehf., Reykjavík, samkvæmt reikningi 9. júlí 2001 að fjárhæð kr. 157.320 sem hann lét stíla á byggingarnefnd Þjóðleikhússins. Reikningnum var framvísað hjá Framkvæmdasýslu ríkisins en reikningsfjárhæðin var ekki greidd af fjárveitingum byggingarnefndarinnar.

B. Ákærði Árni er sakaður um fjárdrátt í opinberu starfi sem formaður byggingarnefndar Vestnorræna ráðsins, Brattahlíðarnefndar, með því að hafa dregið sér;

14. kr. 782.790 af bankareikningi Vestnorræna ráðsins við Landsbanka Íslands, Reykjavík, þann 22. júní 2001 er ákærði fénýtti í eigin þágu andvirði tékka sem hann fékk útgefinn af Landsbanka Íslands til X og lét skuldfæra á bankareikning Vestnorræna ráðsins vegna tilhæfulauss reiknings, dagsetts 20. júní 2001, á hendur Brattahlíðarnefnd yfir smíði á þrjátíuogtveimur kistilhnöllum sem hann blekkti X til að undirrita. Þann 22. júlí 2001 fékk ákærði X til að undirrita yfirlýsingu um að hann gæti ekki sinnt smíði kistilhnallanna og afhenti honum reiðufé til þess að skila fjárhæðinni sem X gerði næsta dag með því að fara í Landsbanka Íslands, Kópavogi, og leggja peningana inn á bankareikning Vestnorræna ráðsins við Landsbanka Íslands, Reykjavík.

Brot ákærða samkvæmt 1.-14. tölulið þykja varða við 247. gr. sbr. 138. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 1. mgr. 20. gr. sömu laga að því er 7. lið varðar.

C. Ákærði Árni er sakaður um rangar skýrslur til yfirvalda með því að;

15. framvísa á skrifstofu Alþingis með umsókn, dagsettri 28. desember 2000, um lækkun á tekjuskattstofni starfskostnaðargreiðslna, tilhæfulausum greiðslukvittunum

a) fyrir leigu á fundaraðstöðu 15. janúar til 15. desember 2000 að fjárhæð kr. 112.000, dagsettri 15. febrúar 2000, sem hann fékk fyrirsvarsmann Drífandi ehf. til að gefa út og

b) fyrir veitingar handa 70 manns að fjárhæð kr. 118.000, dagsettri 3. júní 2000, sem hann fékk X til að gefa út.

Brot ákærða samkvæmt 15. tölulið þykir varða við 147. gr., sbr. 138. gr., almennra hegningarlaga.

D. Ákærði Árni er sakaður um brot í opinberu starfi, mútuþægni, með því að hafa;

16. í marsmánuði 2000, fengið Ístak hf., sem hann átti umfangsmikil samskipti við sem formaður byggingarnefndar Þjóðleikhússins og formaður byggingarnefndar Vestnorræna ráðsins, Brattahlíðarnefndar, til þess að greiða n.kr. 67.308,40 samkvæmt reikningi dagsettum 13. apríl 2000 fyrir tilsniðið timbur í stafkirkju sem ákærði festi kaup á fyrir sjálfan sig hjá Materialbanken AS í Noregi á sama tíma og hann vann að viðtöku stafkirkju, þjóðargjafar Norðmanna til Íslendinga, sem formaður byggingarnefndar stafkirkju í Vestmannaeyjum. Ístak hf. færði fjárhæð reikningsins til gjalda í bókhaldi sínu í maímánuði 2000 á bókhaldsreikning vegna byggingaframkvæmda í Brattahlíð en með færslu dagsettri 30. júní 2001 voru timburkaup ákærða færð honum til skuldar með kr. 875.694 á viðskiptareikningi ákærða sem þá var stofnað til í bókhaldi Ístaks hf.

17. sem formaður byggingarnefndar Þjóðleikhússins, í marsmánuði 2001, heimtað og þegið kr. 650.000 úr hendi fyrirsvarsmanna Þjóðleikhúskjallarans hf., meðákærðu Björns Kristmars Leifssonar og Gísla Hafliða Guðmundssonar, fyrir að samþykkja reikning Þjóðleikhúskjallarans hf., dagsettan 8. febrúar 2001 að fjárhæð kr. 3.154.419, vegna ýmissa lagfæringa í Þjóðleikhúskjallaranum á fimm ára tímabili frá dagsetningu reiknings að telja, til greiðslu af fjárveitingum byggingarnefndar Þjóðleikhússins.

Brot ákærða samkvæmt 16. og 17. tölulið þykir varða við 128. gr. almennra hegningarlaga.

E. Ákærði Árni er sakaður um umboðssvik í opinberu starfi með því að hafa sem formaður byggingarnefndar Vestnorræna ráðsins, Brattahlíðarnefndar, misnotað aðstöðu sína, sér eða öðrum til ávinnings;

18. þann 22. júní 2001 er hann greiddi af bankareikningi Vestnorræna ráðsins við Landsbanka Íslands, Reykjavík, Torf- og grjóthleðslunni ehf. Hellu, reikning á eyðublaði Torf- og grjóthleðslna, dagsettan 10. ágúst 2000, að fjárhæð kr. 645.000, vegna hleðslu í Brattahlíð og tækjaleigu, þótt Torf- og grjóthleðslan ehf., sem verið hafði undirverktaki Ístaks hf. við framkvæmd verks í Grænlandi á árinu 2000 og fengið fullnaðargreiðslu frá Ístaki hf., hafi ekki átt lögvarða kröfu á hendur Brattahlíðarnefnd.

Brot ákærða samkvæmt 18. tölulið þykir varða við 249. gr., sbr. 138. gr. almennra hegningarlaga.

II.

Ákærða Árna er í eftirgreindum tilvikum gefið að sök umboðssvik í opinberu starfi sem formaður byggingarnefndar Þjóðleikhússins og ákærða, Gísla Hafliða Guðmundssyni, hlutdeild í þeim með því að;

19. ákærði Árni misnotaði afstöðu sína og samþykkti til greiðslu af fjárveitingum byggingarnefndarinnar ár 1998, sér eða öðrum til ávinnings, tilhæfulausan reikning sem meðákærði Gísli Hafliði Guðmundsson útbjó og gaf út í nafni Þjóðleikhúskjallarans hf. dagsettan 18. mars 1998 að fjárhæð kr. 82.500 fyrir kaffi og kökur á tuttuguogníu fundum byggingarnefndarinnar á tímabilinu júlí 1997 til mars 1998.

20. ákærði Árni misnotaði aðstöðu sína og samþykkti til greiðslu af fjárveitingum byggingarnefndarinnar ár 1999, sér eða öðrum til ávinnings, tilhæfulausan reikning Þjóðleikhúskjallarans hf. sem meðákærði Gísli Hafliði Guðmundsson útbjó og gaf út í nafni Þjóðleikhúskjallarans hf. dagsettan 20. janúar 1999 að fjárhæð kr. 88.000 fyrir kaffiveitingar á fundum vegna endurbóta í Þjóðleikhúsi.

Þykir brot ákærða Árna samkvæmt 19. og 20. tölulið varða við 249. gr., sbr. 138. gr. almennra hegningarlaga, en brot ákærða Gísla Hafliða samkvæmt sömu töluliðum við 249. gr., sbr. 22. gr. almennra hegningarlaga.

III.

Ákærða Árna er í eftirgreindu tilviki gefið að sök umboðssvik í opinberu starfi sem formaður byggingarnefndar Þjóðleikhússins og Stefáni Axel Stefánssyni hlutdeild í þeim umboðssvikum með því að;

21. ákærði Árni misnotaði aðstöðu sína og samþykkti til greiðslu af fjárveitingum byggingarnefndarinnar, sér eða öðrum til ávinnings, tilhæfulausan reikning Forum ehf. dagsettan 14. desember 2000 að fjárhæð kr. 169.000 sem meðákærði Stefán Axel Stefánsson útbjó og gaf út í nafni Forum ehf. fyrir kaffiveitingar í Leikhúskjallaranum á þrjátíuogþremur fundum byggingarnefndarinnar á tímabilinu nóvember 1999 til október 2000.

Brot ákærða Árna samkvæmt 21. tölulið þykir varða við 249. gr., sbr. 138. gr. almennra hegningarlaga, en brot ákærða Stefáns Axels samkvæmt sama tölulið við 249. gr., sbr. 22. gr. almennra hegningarlaga.

IV.

Ákærða Árna er í eftirgreindum tilvikum gefið að sök umboðssvik og fjárdráttur í opinberu starfi sem formaður byggingarnefndar Þjóðleikhússins með því að hafa misnotað aðstöðu sína og dregið sér verðmæti sér til ávinnings og ákærða Tómasi Tómassyni verkfræðingi hjá Ísaki hf., umsjónarmanni með verkum við Þjóðleikhúsið, er gefið að sök þátttaka í umboðssvika- og fjárdráttarbrotunum.

A. Umboðssvik.

22. Ákærði Árni fékk meðákærða Tómas til þess á árinu 1999 að láta Ístak hf. annast innréttingu á bílskúr að Haukalind 17, Kópavogi, sem var byggingarnefnd Þjóðleikhússins algjörlega óviðkomandi, og gera byggingarnefndinni reikning vegna kostnaðar við framkvæmdina sem nam kr. 305.825 samkvæmt reikningi Ístaks hf. á hendur byggingarnefndinni dagsettum 30. mars 2000 að viðbættu 15% álagi.

23. Ákærði Árni fékk meðákærða Tómas til þess að gefa út beiðni í nafni Ístaks hf. til Funa ehf. blikksmiðju, dagsetta 30. mars 2001, um sandblástur, efni og viðgerðir á ofni, sem var byggingarnefndinni algjörlega óviðkomandi, en Ístak hf. krafði kostnað vegna verksins, kr. 32.800, samkvæmt reikningi Funa ehf., blikksmiðju, dagsettum 23. apríl 2001, með reikningi á hendur byggingarnefndinni dagsettum 28. maí 2001 að viðbættu 15% álagi. Ákærði endurgreiddi fjárhæðina 13. ágúst 2001 án álagsins.

B. Fjárdráttur.

Ákærði Árni er sakaður um að hafa með aðstoð meðákærða Tómasar dregið sér;

24. flísar og fylgiefni sem hann tók út hjá Vídd hf., Kópavogi, í viðskiptareikning Ístaks hf. samkvæmt beiðni sem meðákærði Tómas gaf út til sölufyrirtækisins. Ístak hf. krafði fjárhæð reiknings Víddar hf., dagsetts 14. febrúar 2001, kr. 290.693, hjá byggingarnefnd Þjóðleikhússins með reikningi dagsettum 28. febrúar 2001 að viðbættu 15% álagi. Ákærði Árni endurgreiddi fjárhæðina 13. ágúst 2001 án álagsins.

25. hurðir, karma, glugga og innréttingar sem hann tók út hjá Trésmiðju Sigurjóns Jónssonar, Stokkseyri, í viðskiptareikning Ístaks hf. samkvæmt beiðni sem meðákærði Tómas gaf út til trésmiðjunnar dagsettri 3. maí 2001. Ístak hf. krafði fjárhæð reiknings Trésmiðju Sigurjóns Jónssonar, dagsetts 8. maí 2001, kr. 418.000, hjá byggingarnefnd Þjóðleikhússins með reikningi dagsettum 14. júní 2001 að viðbættu 15% álagi. Ákærði Árni endurgreiddi fjárhæðina 13. ágúst 2001 án álagsins.

26. hurðir, karma, gerefti, þröskulda og hurðarhúna sem hann tók út hjá Húsasmiðjunni hf., Reykjavík, í viðskiptareikning Ístaks hf. samkvæmt beiðni sem meðákærði Tómas gaf út til Húsasmiðjunnar hf. 3. maí 2001. Ístak hf. krafði fjárhæð reiknings Húsasmiðjunnar hf., dagsetts 16. maí 2001, kr. 104.981, hjá byggingarnefnd Þjóðleikhússins með reikningi dagsettum 14. júní 2001 að viðbættu 15% álagi.

27. baðherbergistæki sem hann tók út hjá Tengi ehf., Kópavogi, í viðskiptareikning Ístaks hf. samkvæmt beiðni sem meðákærði Tómas gaf út til Tengis ehf. dagsettri 3. maí 2001. Ístak hf. krafði fjárhæð reiknings Tengis ehf., dagsetts 16. maí 2001, kr. 184.624, hjá byggingarnefnd Þjóðleikhússins með reikningi dagsettum 14. júní 2001 að viðbættu 15% álagi.

Brot ákærða Árna samkvæmt 22. og 23. tölulið þykja varða við 249. gr., sbr. 138. gr. almennra hegningarlaga, en brot ákærða Tómasar samkvæmt sömu liðum við 249. gr. almennra hegningarlaga.

Brot ákærða Árna samkvæmt 24. til 27. tölulið þykja varða við 247. gr. en brot ákærða Tómasar samkvæmt sömu töluliðum við 247. gr., sbr. 22. gr. almennra hegningarlaga, en til vara við 249. gr. almennra hegningarlaga.

V.

Ákærðu Birni Kristmari og Gísla Hafliða er gefið að sök mútur með því að hafa;

28. sem fyrirsvarsmenn Þjóðleikhúskjallarans hf. lofað á árinu 2001 að greiða meðákærða Árna sem formanni byggingarnefndar Þjóðleikhússins kr. 650.000 þóknun fyrir að samþykkja greiðslu á reikningi Þjóðleikhúskjallarans hf. á hendur byggingarnefnd Þjóðleikhússins, vegna ýmissa lagfæringa í Þjóðleikhúskjallaranum á fimm ára tímabili, dagsettum 8. febrúar 2001, að fjárhæð kr. 3.154.419. Þóknunina inntu þeir af hendi í marsmánuði 2001 þegar reikningsfjárhæðin hafði verið greidd Þjóðleikhúskjallaranum hf. af fjárveitingum byggingarnefndar Þjóðleikhússins.

Brot ákærðu samkvæmt 28. tölulið þykir varða við 109. gr. almennra hengingarlaga.

Þess er krafist að ákærðu verði dæmdir til refsingar.

Reykjavík 6. maí 2002.

Bogi Nilsson ríkissaksóknari.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert