Sjálfstæðisflokkur og Samfylking bítast um forystuna

Kosningabaráttan fer harðnandi og fóru kappræður fram í Hádegismóum fyrr …
Kosningabaráttan fer harðnandi og fóru kappræður fram í Hádegismóum fyrr í dag. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Sjálfstæðisflokkurinn og Samfylkingin eru hnífjöfn samkvæmt nýjustu kosningaspá Metils, og mælast báðir flokkar með fylgi að miðgildi 18%. Er um nokkrar sviptingar að ræða frá síðustu spá Metils, en þar var Viðreisn með flest þingsæti.

Í rökstuðningi Metils segir að tvær nýjar fylgiskannanir frá Maskínu og Prósent hafi nokkur áhrif á líkanið. Þá hafi það einnig áhrif að færri dagar séu til kosninga, en þá minnkar óvissan í líkaninu og vægi kannana eykst á kostnað sögulegra gagna. 

Samkvæmt spánni mælist Viðreisn með 16% fylgi að miðgildi, en flokkurinn var með 17% miðgildi í síðustu spá Metils. Þá sækir Flokkur fólksins í síg veðrið samkvæmt spánni.

Píratar og Sósíalistar auka líkur sínar á að ná inn manni

Í rökstuðningi Metils er einnig vikið að 5% þröskuldinum og þar kemur í ljós að bæði Píratar og Sósíalistar hafa aukið líkur sínar samkvæmt spálíkaninu á því að ná yfir þröskuldinn. Eru því nokkrar líkur á því að annar eða báðir nái mönnum inn á þing. 

Líklegasta útkoman samkvæmt nýjustu spá er að sjö flokkar nái þingmönnum, en á því eru um það bil helmings líkur samkvæmt tölfræðilíkani Metils.

Metill hyggst birta lokaspá sína annað kvöld eftir að síðustu kannanir hafa birst.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka