Býður sig fram í forvali VG í Reykjavík

Árni Björn Guðjónsson.
Árni Björn Guðjónsson.

Árni Björn Guðjónsson býður sig fram á lista VG í Reykjavík suður eða norður í komandi kosningum

Árni er fæddur 6. apríl 1939. Hann lauk prófi frá Iðnskólanum í Reykjavik 1962. Hann stundaði nám í Myndlistarskólanum í Reykjavik á árunum 1957 til 1962, að því er segir í tilkynningu.

Eftirfarandi kennarar voru þá við skólann með mismunandi námskeið: Ásmundur Sveinsson, Veturliði Gunnarsson, Hringur Jóhannsson, Hafsteinn Austmann og Ragnar Kjartansson og fleiri.

Einnig hefur Árni sótt tíma hjá listakonunni Veru Sörensen. Árni stundaði nám í Tækniskóla Íslands 1967-1970. Árni hefur sótt ýmis námskeið á vegum Samtaka Iðnaðarins.

Hann var með málverkasýningu í bænum Yecla á Spáni í apríl og maí í 2006.
Hann hefur verið með sýningar á ýmsum stöðum,svo sem Galileo veitingahús, Hlíðarenda á Hvolsvelli, Hótel Geysir Haukadal, Garðabergi Garðabæ, Feng Shui Klapparstíg ,Bistro Bar,í anddyri Sundlaugarinnar í laugardal og Sjóminjasafninu í Reykjavík, í Eden Hveragerði ágúst 2006.

Í Vörðinni Sandgerði desember 2007. Versluninni Sjónarhól Hafnarfirði í febrúar 2008. Eden Hveragerði í ágúst 2008.

Árni er með meistarabréf í húsgagnasmíði og rak innréttingaverkstæði um árabil og húsgagnaverslun. Árni málar mest landslagsmyndir í olíu og teikningar með kol og acryl. Árni var í framboði fyrir Kristilega Lýðræðisflokkinn 1995 og 1999 í Reykjavik


mbl.is

Bloggað um fréttina