Gosið hófst í Eyjafjallajökli í nótt og er það mun öflugra en gosið sem varð á Fimmvörðuhálsi. Gossprungan norður-suður er um 2 km á lengd og eru þrjú göt nú sjáanleg á jöklinum. Hlaup kom í Markarfljót í kjölfar gossins og voru skörð rofin í varnargarðinn austan við ána til að reyna að vernda Markarfljótsbrúna.