Steve Jobs
Uppnám er meðal bandarískra fjárfesta eftir að Steve Jobs, stjórnarformaður Apple, tilkynnti að hann ætlaði í sex mánaða veikindaleyfi. Gengi bréfa Apple lækkaði og hætta er talin á að fjárestar höfði mál gegn fyrirtækinu vegna þess að ekki hafi verið veittar nægar upplýsingar um málið. Heilsufar Jobs hefur verið mjög í fréttum undanfarin ár en hann gekkst m.a. undir aðgerð vegna krabbameins í brisi árið 2004.