Í kjölfar mikils áhuga á tónleikum Nick Cave á Broadway 9. desember næstkomandi þar sem miðar á tónleikana seldust upp á innan við klukkutíma hafa tekist samningar um að Cave haldi aðra tónleika hér á landi þriðjudaginn 10. desember.
Miðasala á þá tónleika hefst næstkomandi þriðjudag kl. 12 í verslunum Japis á Laugavegi og í Brautarholti. Hver einstaklingur getur ekki keypt fleiri en fjóra miða í einu.