Leikarinn Viggo Mortensen, sem hlaut heimsfrægð fyrir leik sinn í Hringadróttinssögu, var staddur á landinu í liðinni viku. Líkt og Aragorn er kappinn mikill knapi og fór Viggo ásamt syni sínum, Henry Mortensen, tvisvar sinnum á hestbak hjá Hestaleigunni í Laxnesi. Þeir héldu í tvo tveggja klukkustunda útreiðartúra um nágrenni Laxness, að sögn Hauks Þórarinssonar hjá hestaleigunni, sem fór með feðgunum í seinni túrinn.
Feðgunum líkuðu íslensku hestarnir vel. "Mér skilst að hann hafi ekki prófað íslenska klára áður en hann var vel sáttur," segir Haukur.
Sem dæmi um ást Viggos á hestum þá óskaði hann þess að Aragorn fengi að vera meira á hestbaki í Hringadróttinssögu en í fyrstu var ætlunin. Hann hafði ennfremur hest sinn í myndinni ávallt nærri og fór á hestbak þegar ekki var verið að mynda til að styrkja samband manns og hests.
Mortensen-feðgarnir fóru af landi brott í gær en þess má geta að hinn 15 ára Henry hefur leikið í kvikmyndum eins og pabbinn. Hann lék m.a. son Viggos á hvíta tjaldinu í myndinni Blóðrauð sjávarföll (Crimson Tide) frá árinu 1995.
Haukur er mikill aðdáandi Hringadróttinssögu, bæði bókanna og myndanna, og var því ánægður með heimsóknina. "Þetta er mikill heiður."