Þrír lykilstarfsmenn hætta störfum ásamt Jóhanni R. Benediktssyni lögreglustjóra á Suðurnesjum sem hefur beðist lausnar frá embætti frá og með fyrsta október. Hann segir trúnaðarbrest milli sín og dómsmálaráðherra. Staðgengill lögreglustjóra segir búið að drepa allan eldmóð innan embættisins.