Kristinn Unnarsson húsvörður hafði í nógu að snúast að fylgja starfsmönnum inn í Seðlabankann í morgun en þeir voru að mæta til vinnu við fremur óvanalegar aðstæður. Hópur fólks barði á trommur og lét glamra í búsáhöldum fyrir utan bankann. Kristinn sagðist skilja fólkið að sumu leyti.