Dómsmálaráðherra segir að stjórnvöld geti ekki látið undan þrýstingi þeirra sem fari í hungurverkfall eða aðrar mótmælaaðgerðir þegar þurfi að úrskurða um pólitískt hæli. Slíkt gæti falið í sér brot á jafnræðisreglu gagnvart þeim sem sýni minni aðgangshörku.