George Carlin lést á sunnudag af hjartabilun, 71 árs af aldri. Hann lét leggja sig inn síðdegis í gær og kvartaði um verk fyrir brjóstkassa. Lést hann síðar um kvöldið. Hann hefur átt við hjartaerfiðleika að stríða um nokkurt skeið en lét það ekki hindra sig í að koma fram og gerði það síðast viku áður en hann dó.