Tæplega áttræður hlynur vann fegurðarsamkeppni á dögunum og gerði eiganda sinn afar stoltan. Borgarstarfsmenn hafa lengi haft horn í síðu glæsitrésins og viljað senda það í klippingu og jafnvel styttingu en eigandi þess sem man eftir því jafn lengi og sjálfum sér tekur ekkert slíkt í mál.