Lögreglan á Selfossi náði myndbandsupptöku af undarlegum ljósagangi í háloftunum skömmu eftir miðnættið síðast liðna nótt. Lögregluþjónarnir voru í hefðbundnu vegaeftirliti á Eyrabakkavegi á leið í austurátt er þeir urðu varir við mikinn blossa sem stefndi að þeirra mati að Ölfusá.