Sváfu yfir sig

Þeir sem nota iPhone sem vekjaraklukku kunna að hafa sofið …
Þeir sem nota iPhone sem vekjaraklukku kunna að hafa sofið yfir sig um helgina Reuters

Margir iPhone notendur sváfu yfir sig nú um helgina. Ástæðan er bilun í vekjaraklukkum iPhone.

Samkvæmt tilkynningu frá forsvarsmönnum Apple kom bilunin fram með þeim hætti að vekjaraklukka iPhone virkaði ekki sem skildi 1. og 2. janúar. Samkvæmt tilkynningunni munu vekjaraklukkur símanna virka eðlilega frá 3. janúar.

Bloomberg fréttaveitan segir frá þessu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert