Fyrirtækið Modernus, sem mælir notkun íslenskra vefja, hefur sent frá sér tilkynningu vegna stóraukins erlends áhorfs á innlenda netmiðla undanfarnar vikur. Segir í tilkynningunni að það sé í sjálfu sér gleðiefni að innlendir netmiðlar skuli í vaxandi mæli fá erlenda athygli en hins vegar sé Modernus nokkur vandi á höndum ef listi Samræmdrar vefmælingar eigi fyrst og fremst að endurspegla netnotkun almennings á Íslandi.
Í tilkynningunni kemur fram, að hugi.is vermi nú efsta sæti lista Samræmdrar vefmælingar með 180.082 gesti. Í viku númer 50 á síðasta ári mældust gestir huga.is 233.446. „Fjöldi sem þessi getur með engu móti endurspeglað innlent áhorf í þjófélagi sem telur aðeins um 290.000 manns. Innlent áhorf á huga.is nemur um 50% af heildargestafjöldanum, en samsvarandi hlutfall hjá mbl.is er um 86%, um 95% hjá leit.is, og aðeins um 3% á leikjavefnum eve-online.com svo dæmi sé tekið.
Markmið Modernus með birtingum á samræmdum upplýsingum um áhorf á netmiðlana er að sýna með sanngjörnum hætti áhorfið (gestafjöldann og innlitin) og notkunina (fjölda síðuflettinga) á innlendum netmiðlum. Samræmd vefmæling var upphaflega sett á fót til þess að kaupendur netauglýsinga gætu með aðveldum hætti séð hvaða innlenda netmiðla almenningur nýtir sér helst og í hve miklum mæli. Þegar erlend notkun netmiðila á lista Samræmdrar vefmælingar (einsog í tilfelli á huga.is) er að mestu tilkomin vegna niðurhals erlendra notenda á vistuðu efni frá þriðja aðila, hækkar gestafjöldinn mun meira en fjöldi innlita og flettinga," segir í tilkynningunni.
Þar segir að tæknilega séð sé hægt að bregðast við þessu, t.d. með því að birta einnig upplýsingar um hversu stór hluti gestanna kemur frá Íslandi og hversu stór hluti þeirra komi annars staðar frá. Svonefndur samráðshópur um Samræmda vefmælingu, sem Verslunarráð Íslands heldur utan um, hyggist koma saman innan tíðar og ræða hvort og þá hvernig beri að tilgreina innlent og erlent áhorf. Markmiðið sé að tölurnar á lista Samræmdrar vefmælingar sýni með hlutlægum hætti hvernig og hvar áhorfið á netmiðlana liggur.
Listi samræmdrar vefmælingar hefur verið birtur vikulega óslitið frá 1. maí 2001. Listi 25 efstu vefjanna er birtur vikulega í Morgunblaðinu og listi 70 efstu vefjanna er birtur á síðu 631 í Textavarpi RÚV. Verslunarráð Íslands er formlegur eftirlitsaðili með framkvæmdinni samkvæmt samningi.