Hvenær er maður orðinn seinn?

Vísindamenn hafa loksins komist að því hvað „seint“ merkir: Tíu mínútur og 17 sekúndur. Það er tímaþröskuldurinn þegar fólki finnst að meðaltali að það þurfi að hringja og láta vita að það verði seint fyrir. En um 10% fólks fer ekki að hugsa um að tilkynna sig of seint fyrr en heilum hálftíma eftir að umsaminn stefnumótstími er liðinn.

Frá þessu greinir Ananova.com og hefur eftir bílavefnum GetMeThere.co.uk.

Á hverjum 10 mínútum og sautján sekúndum fæðast 12 börn á Englandi og Wales, átta umferðarslys verða, 3804 fara um borð í flugvélar og 590 milljónir tölvuskeyta eru send um allan heim.

Yfir 80% fólks á sextugsaldri segist aldrei mæta of seint vegna þess að það hafi alltaf áhyggjur af því að koma of seint. En hátt í 70% ungra kvenna telur að það sé „boðlegt og jafnvel stællegt“ að mæta of seint á fyrsta stefnumót vegna þess að þá virðist síður að þær séu örvæntingarfullar.

En um eitt eru bæði kynin sammála: Þeim væri sléttsama um að koma of seint í afmælisveislu hjá tengdó.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert