[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur
Óeirðir á Austurvelli 1949

Óeirðir á Austurvelli 1949



Ljósmynd: Morgunblaðið/Óli K. Magnússon


Í ársbyrjun 1949 var Íslendingum boðið að gerast aðilar að nýju hernaðarbandalagi sem kallað var North Atlantic Treaty Organization, NATO, eða Atlantshafsbandalagið upp á íslensku. Ríkisstjórnin ákvað að leggja til að boðinu yrði tekið, en víða í þjóðfélaginu ríkti andstaða gegn þessari fyrirætlan og þá sérsaklega meðal sósíalista. Þann 30. mars 1949 fór fram síðari umræða á þingi um aðild Íslendinga að NATO og var aðildin samþykkt með 37 atkvæðum gegn 13 mótatkvæðum, þar af 10 þingmanna Sósíalistaflokksins, 2 þingmanna Alþýðuflokksins og eins þingmanns Framsóknarflokksins. Tveir þingmanna Framsóknarflokksins sátu hjá, þar á meðal Hermann Jónasson formaður flokksins.
Meðan á þingfundi stóð höfðu andstæðingar aðildar að NATO haldið fund við Miðbæjarskólann, en að honum loknum fóru fundarmenn margir út á Austurvöll og tóku að kasta í Alþingishúsið eggjum, mold og grjóti. Þegar atkvæðagreiðslan stóð yfir fuku steinar og glerbrot um þingsalinn, og þegar úrslitin voru ljós færðist æsingur í hópinn utan við Alþingishúsið.
Með leynd hafði verið komið fyrir varaliði lögreglunnar í fundarherbergi Framsóknarmanna, og að lokinni aðkvæðagreiðslunni var varaliðið kallað út á Austurvöll þar sem að lögreglunni gekk illa að koma æstum mannfjöldanum frá húsinu. Við það dreifðist mannfjöldinn nokkuð en brátt sló í brýnu milli lögreglunnar, sem beitti kylfum, og mannfjöldans sem m.a. reif upp og grýtti að lögreglunni hraunhellum, sem raðað hafði verið meðfram gangstígum á Austurvelli. Í átökunum slösuðust nokkrir lögreglumenn talsvert og fjöldi manna leitaði sér læknisaðstoðar vegna meiðsla.
Að lokum varpaði lögreglan táragassprengjum að mannfjöldanum og lagði hvítan og gráan mökkinn af sprengjunum yfir Austurvöll. Þá dreifðist hópurinn og eftir stóðu lögreglumenn með gasgrímur fyrir vitum. Þingmönnum gafst tækifæri til að komast út úr Alþingishúsinu, en á myndinni má sjá lögreglumenn búna kylfum og svörtum gasgrímum hrekja mannfjöldann á brott í gasskýi.