ÍBV hafði betur gegn HK, 3:2, í 1. deild kvenna í knattspyrnu á Hásteinsvelli í Vestmannaeyjum í kvöld.
ÍBV er komið úr fallsæti og í áttunda sæti deildarinnar með tíu stig. HK er í þriðja sæti með 14.
Viktorija Zaicikova kom ÍBV yfir á 3. mínútu en Brookelynn Entz jafnaði metin á 38. mínútu, 1:1.
Guðmunda Brynja Óladóttir kom HK í 2:1 á 50. mínútu en þremur mínútum síðar jafnaði Alexus Nychole Knox metin, 2:2.
Olga Sevcova var enn einu sinni hetja ÍBV en hún skoraði sigurmarkið á 77. mínútu, 3:2 fyrir ÍBV og þar við sat.