Stjarnan mætir norður-írska liðinu Linfield í Sambandsdeild Evrópu í fótbolta í næstu viku og af því tilefni hefur félagið frumsýnt nýjan Evrópubúning.
Stjarnan hefur í gegnum tíðina spilað í sérstökum Evrópubúningum og engin undantekning er gerð í ár. Myndbandið sem sýnir búninginn er dramatískt en það er rennt yfir andstæðinga liðsins í Evrópukeppnum í gegnum árin.
Daníel Laxdal, Örvar Eggertsson, Guðmundur Kristjánsson og Óli Valur Ómarsson sýna búninginn sem er stílhreinn og glæsilegur.