Grindavík jafnaði tveimur færri fyrir norðan

Úr leik liðanna í kvöld.
Úr leik liðanna í kvöld. Ljósmynd/Kristín Hallgrímsdóttir

Grindavík náði í ótrúlegt stig gegn Þór á Akureyri þegar að liðin gerðu jafntefli, 2:2, í 1. deild karla í knattspyrnu í dag. 

Grindavík er í fjórða sæti með 17 stig en Þór er í sjötta sæti með 14 stig. 

Kwame Quee kom Grindavík yfir á fyrstu mínútum leiksins en á 54. mínútu jafnaði Rafael Victor metin, 1:1. 

Eric Vales fékk rautt spjald á 71. mínútu í liði Grindavíkur og á 77. mínútu kom Rafael Victor Þór yfir, 2:1. 

Nuno Malheiro fékk einnig rautt spjald í liði Grindavíkur á 84. mínútu og gestirnir þar með tveimur færri. 

Þrátt fyrir það jafnaði Dagur Ingi Hammer Gunnarsson metin fyrir Grindavík undir lok leiks og tryggði gestunum magnað stig. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert