Íslands- og bikarmeistarar Víkings úr Reykjavík mæta írska liðinu Shamrock Rovers í fyrri leik liðanna í 1. umferð undankeppni Meistaradeildar karla í knattspyrnu á Víkingsvellinum annað kv0ld.
Leikmenn sem og þjálfarar Víkinga eru spenntir fyrir leiknum sakvæmt Arnari Gunnlaugssyni þjálfara og hafa verið að hlusta á Meistaradeildarlagið, en það verður spilað fyrir leikinn annað kvöld.
„Við höfum aðeins verið að hlusta á Meistaradeildarlagið inni. Það verður geggjað að heyra það merka lag rétt fyrir upphaf leiks.
Ég trúi ekki öðru en að allir séu spenntir.“
Arnar bætti við að verkefninu fylgir óvissa.
„Þetta er öðruvísi þar sem við þekkjum ekki andstæðinginn eða leikmenn liðsins fyrir leik. +
Við rennum þó ekki blint í sjóinn því það eru ágætis greiningar í gangi þessa dagana. Þetta verður erfitt verkefni, þannig á það að vera í Meistaradeildinni.“