Selfyssingar misstigu sig á heimavelli

Jón Vignir Pétursson, til vinstri, skoraði fyrir Selfoss.
Jón Vignir Pétursson, til vinstri, skoraði fyrir Selfoss. Ljósmynd/Þórir Tryggvason

Selfoss og KFG gerðu jafntefli, 2:2, í 2. deild karla í knattspyrnu á Selfossi í kvöld. 

Selfoss er í toppsæti deildarinnar með 26 stig, þremur stigum á undan Víkingi Ólafsvík og fjórum stigum á undan KFA. KFG er í tíunda sæti með ellefu stig. 

KFG komst óvænt í 2:0 þökk sé mörkum frá Bjarka Haukssyni og Jóni Arnari Barðdal en Jón Vignir Pétursson minnkaði muninn fyrir Selfóss á 74. mínútu, 2:1. 

Reynir Freyr Sveinsson jafnaði metin undir blálok leiks fyrir Selfoss, 2:2, og þar við sat. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert