Upp um fimm sæti með einum sigri

Lovísa Davíðsdóttir Scheving skoraði sigurmark Gróttu.
Lovísa Davíðsdóttir Scheving skoraði sigurmark Gróttu. Eggert Jóhannesson

Grótta hafði betur gegn HK, 1:0, í 1. deild kvenna í knattspyrnu á Seltjarnarnesi í kvöld. 

Grótta fer úr áttunda í þriðja sæti deildarinnar með sigrinum en nú er liðið með 15 stig. HK er í fimmta sæti með 14. 

Lovísa Davíðsdóttir Scheving skoraði sigurmark Gróttukvenna á 55. mínútu leiksins. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert