Selfoss í kjörstöðu eftir risasigur

Jón Vignir Pétursson skoraði fyrir Selfoss.
Jón Vignir Pétursson skoraði fyrir Selfoss. Ljósmynd/Þórir Tryggvason

Selfoss er komið í kjörstöðu í annarri deild karla í knattspyrnu eftir frábæran útisigur á KFA, 1:0, í Fjarðabyggðahöllinni á Reyðarfirði í dag. 

Selfoss er með 32 stig á toppi deildarinnar, sex stigum á undan Víkingi Ólafsvík í öðru sæti og sjö stigum á undan KFA í þriðja sæti. Efstu tvö liðin fara upp í 1. deild. Ólafsvíkingar töpuðu fyrir Þrótti í Vogum í gærkvöld, 3:2.

Sigurmark Selfyssinga skoraði fyrirliðinn Jón Vignir Pétursson undir lok fyrri hálfleiks.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert