Alls hafa 4.400 miðar verið seldir á leik Íslands og Svartfjallalands í fyrstu umferð 4. riðils í B-deild Þjóðadeildar Evrópu í knattspyrnu karla, sem fer fram á Laugardalsvelli í kvöld.
Enn er því nóg af miðum í boði þar sem Laugardalsvöllur tekur 9.800 manns í sæti.
Miðasala fer fram á tix.is þar sem hægt er að velja verðflokk eftir því hvar setið er í áhorfendastúkunni.
Leikurinn hefst klukkan 18.45 í kvöld.