Skærasta stjarna Tyrkja ekki með?

Arda Güler meiddist gegn Tyrklandi.
Arda Güler meiddist gegn Tyrklandi. AFP/Oliver Nicholls

Hinn 19 ára gamli Arda Güler æfði ekki með liðsfélögum sínum í tyrkneska landsliðinu í gær en hann hefur verið að glíma við meiðsli.

Er þátttaka hans gegn Íslandi í Þjóðadeildinni í kvöld því í óvissu. Güler er leikmaður Real Madrid og bera Tyrkir miklar vonir til hans.

Güler fór meiddur af velli í markalausu jafntefli Tyrklands og Wales í sömu keppni á föstudagskvöld og æfði ekki í gær.

Vincenzo Montella þjálfari Tyrklands útilokaði þó ekki þátttöku Güler er hann svaraði spurningum blaðamanna á keppnisvellinum í Izmir í gær.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert