Afturelding tryggði sér sæti í Bestu deild karla í knattspyrnu á næsta ári með 1:0-sigri gegn Keflavík í úrslitaleiknum á Laugardalsvelli í dag.
Afturelding hélt vel í boltann í fyrri hálfleik og átti fullt af fyrirgjöfum en lítið var um hættuleg færi og skot á markið frá þeim.
Keflavík fékk hinsvegar nokkur dauðafæri og fyrsta kom á 18. mínútu þegar Sami Kamel skaut í varnarvegg úr aukaspyrnu og boltinn fór rétt framhjá. Keflavík vildi svo víti á 27. Mínútu þegar boltinn fór í höndina á Gunnari Bergmann en fengu það ekki.
Ásgeir Helgi Orrason komst svo í hættulegt færi á 36. mínútu en Jökull Andrésson varði vel af stuttu færi.
Kári Sigfússon slapp svo í gegn á lokamínútu fyrri hálfleiks og keyrði upp völlinn en lenti í vandræðum með boltann og Gunnar kom á fullri ferð og komst fyrir framan hann. Kári potaði þá boltanum framhjá Gunnari og hljóp beint á hann sem var síðasta færi fyrri hálfleiks og staðan 0:0 þegar liðin gengu inn í búningsklefa.
Seinni hálfleikur fór rólega af stað og það gerðist ekki neitt þar til að Sigurpáll Melberg Pálsson kom Aftureldingu yfir á 79. mínútu. Arnór Gauti Ragnarsson, sem var nýkominn inn á, fór í þrumuskot fyrir utan teiginn sem Ásgeir Orri Magnússon varði út í teig og Sigurpáll stökk á frákastið.
Ari Steinn Guðmundsson gerði vel og fékk tvö ágætis færi undir lokinn en náði ekki að klára þau og leikurinn endaði 1:0 fyrir Aftureldingu.