Framlengir í Garðabænum

Snædís María Jörundsdóttir og Eyrún Embla Hjartardóttir í leik FH …
Snædís María Jörundsdóttir og Eyrún Embla Hjartardóttir í leik FH og Stjörnunnar. Ljósmynd/Kristinn Steinn

Knattspyrnukonan Eyrún Embla Hjartardóttir hefur skrifað undir nýjan samning við Stjörnuna sem gildir út tímabilið 2027.

Eyrún Embla er 19 ára varnarmaður sem var í lykilhlutverki hjá Stjörnunni á nýafstöðnu tímabili þar sem hún lék 20 leiki í Bestu deildinni.

Hún lék sína fyrstu leiki fyrir Stjörnuna sumarið 2021 eftir að hafa komið frá uppeldisfélagi sínu Snæfellsnesi.

Alls á Eyrún Embla 47 leiki að baki fyrir Stjörnuna í efstu deild.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert