Heldur áfram hjá uppeldisfélaginu

Ólafur Hrannar Kristjánsson og Nemanja Pjevic halda áfram með Leikni.
Ólafur Hrannar Kristjánsson og Nemanja Pjevic halda áfram með Leikni. Ljósmynd/Leiknir

Knattspyrnudeild Leiknis úr Reykjavík og þjálfarinn Ólafur Hrannar Kristjánsson hafa gert með sér samkomulag og mun hann halda þjálfun karlaliðs uppeldisfélagsins áfram. 

Nemanja Pjevic verður áfram aðstoðarmaður Ólafs, sem er 34 ára og fyrrverandi fyrirliði liðsins. Undir þeirra stjórn vænkaðist hagur Leiknismanna töluvert á liðinni leiktíð.

Þeir tóku við eftir sjö umferðir er Leiknisliðið var í neðsta sæti 1. deildarinnar, en liðið endaði í áttunda sæti, slapp við fall og var ósigrað í síðustu átta umferðunum.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert