23. umferð: Kveður með stórum áfanga

Ásta Eir Árnadóttir í lokaleik sínum á laugardaginn þegar Breiðablik …
Ásta Eir Árnadóttir í lokaleik sínum á laugardaginn þegar Breiðablik varð Íslandsmeistari. mbl.is/Ólafur Árdal

Ásta Eir Árnadóttir, fyrirliði Breiðabliks, tilkynnti í gær að hún hefði ákveðið að leggja skóna á hilluna, daginn eftir að hún lyfti Íslandsmeistaraskildinum eftir úrslitaleikinn gegn Val í lokaumferð Bestu deildar kvenna í fótbolta á laugardaginn.

Ásta kvaddi með því að ná virkilega stórum áfanga en á laugardaginn varð hún önnur konan í sögu Breiðabliks sem spilar 300 mótsleiki fyrir félagið.

Þar af eru 176 leikir í efstu deild og þar er hún næstleikjahæst á eftir Sigrúnu Óttarsdóttur sem lék 178 leiki fyrir Breiðablik í deildinni á sínum tíma. Sigrún lék hins vegar 257 mótsleiki í heild en það leikjamet hjá félaginu á Fanndís Friðriksdóttir, núverandi Valskona, sem spilaði 316 mótsleiki fyrir Kópavogsfélagið.

Sandra María Jessen varð markadrottning deildarinnar með 22 mörk og var í raun búin að tryggja sér þann titil nokkru fyrir mótslok en hún skoraði tíu mörkum meira en næsti leikmaður, Jordyn Rhodes hjá Tindastóli. Þetta er hæsta markaskor leikmanns í deildinni í tíu ár, eða síðan Harpa Þorsteinsdóttir skoraði 27 mörk fyrir Stjörnuna árið 2014.

Úrslit­in í 23. um­ferð:

Þór/KA - Víkingur R. 0:1
FH - Þróttur R. 0:3
Valur - Breiðablik 0:0

Marka­hæst­ar:
22 Sandra María Jessen, Þór/​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​KA
12 Jor­dyn Rhodes, Tinda­stóli
11 Vig­dís Lilja Kristjáns­dótt­ir, Breiðabliki
11 Andrea Rut Bjarna­dótt­ir, Breiðabliki
9 Sam­an­tha Smith, Breiðabliki
8 Agla María Al­berts­dótt­ir, Breiðabliki

8 Jasmín Erla Inga­dótt­ir, Val
8 Katrín Ásbjörns­dótt­ir, Breiðabliki
8 Shaina Ashouri, Vík­ingi
7 Am­anda Andra­dótt­ir, Val

7 Úlfa Dís Úlfars­dótt­ir, Stjörn­unni
6 Birta Georgs­dótt­ir, Breiðabliki

6 Br­eu­kelen Wood­ard, FH
6 Elísa Bríet Björns­dótt­ir, Tinda­stóli
6 Elísa Lana Sig­ur­jóns­dótt­ir, FH
6 Fann­dís Friðriks­dótt­ir, Val
6 Hildigunn­ur Ýr Bene­dikts­dótt­ir, FH
6 Ísa­bella Sara Tryggva­dótt­ir, Val
6 Linda Líf Boama, Vík­ingi

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert