Katrín Ásbjörnsdóttir, knattspyrnukonan reynda úr Breiðabliki, er ekki með slitið krossband í hné eins og óttast var eftir úrslitaleikinn gegn Val um Íslandsmeistaratitilinn á Hlíðarenda á laugardaginn.
Katrín var borin af velli seint í leiknum þegar hún féll illa eftir að hafa skotið að marki. Hún staðfesti í viðtali við fotbolti.net í dag að hún hefði fengið þær góðu fréttir í morgun að krossbandið væri ekki slitið en grunur væri um að hnéskelin hefði farið úr lið.
„Þetta er mikill léttir," segir Katrín í viðtalinu en hún fagnaði Íslandsmeistaratitlinum með samherjum sínum í Breiðabliki á sjúkrabörunum og sat í þeim á verðlaunapallinum eftir leikinn.