Brynjar Kristmundsson hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við Víking Ólafsvík.
Hann hefur verið aðalþjálfari liðsins undanfarin tvö ár en Ólsarar höfnuðu í fjórða sæti 2. deildarinnar á nýliðinni leiktíð og voru aðeins einu stigi frá því að komast upp í 1. deild.
Brynjar hóf þjálfaraferil sinn með Reyni Hellissandi árið 2022 en færði sig síðan yfir til Ólafsvíkur.