Åge um Orra: „Ég elska hann!“

Åge Hareide og Orri Steinn Óskarsson.
Åge Hareide og Orri Steinn Óskarsson. mbl.is/Eyþór

Åge Hareide, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu, hrósaði Orra Stein Óskarssyni í hástert eftir leik Íslands og Tyrklands í 4. riðli B-deildar Þjóðadeildarinnar á Laugardalsvelli í gær.

Leiknum lauk með 4:2-sigri Tyrklands ern Orri Steinn kom íslenska liðinu yfir strax á 3. mínútur eftir frábæran sprett frá eigin vallarhelmingi.

„Hann hljóp yfir hálfan völlinn með mann í bakinu og þrumar boltanum svo upp í þaknetið,“ sagði Hareide þegar hann ræddi um Orra Stein á blaðamannafundi eftir leikinn í höfuðstöðvum KSÍ í gær.

„Ég elska hann! Hann verður frábær fyrir okkur í framtíðinni og hann á líka eftir að gera frábæra hluti á Spáni. Hann er á hárréttum stað þar sem hann getur haldið áfram að þróa sinn leik og verða ennþá betri,“ bætti landsliðsþjálfarinn við.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert