Víkingar fá frían rútumiða upp á Skaga

Stuðningsmenn Víkinga.
Stuðningsmenn Víkinga. mbl.is/Ólafur Árdal

Víkingur úr Reykjavík ætlar að bjóða sínum stuðningsmönnum frían rútumiða upp á Akranes fyrir leik liðsins gegn ÍA í næstsíðustu umferð Bestu deildar karla í knattspyrnu á laugardaginn. 

Íslandsmeistarar Víkings eru á toppnum með 56 stig, jafnmörg og Breiðablik en mun betri markatölu. 

ÍA er hins vegar í mikilli Evrópubaráttu og má búast við æsispennandi leik á laugardaginn. 

Þar sem allt er undir vilja Víkingar fá stuðningsmenn sína upp á Skagann og bjóða því upp á fríar rútuferðir. Rúturnar leggja af stað frá Víkinni klukkan 12 og munu síðan skutla stuðningsfólki aftur í Víkina að leik loknum. 

Hægt er að nálgast rútumiðana hér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert