Knattspyrnukonan Anita Linda Daníelsdóttir hefur framlengt samning sinn við uppeldisfélagið Keflavík til ársins 2027.
Mun Anita því vera áfram í herbúðum Keflavíkur, þrátt fyrir að liðið hafi fallið úr Bestu deildinni á liðinni leiktíð.
Hún hefur leikið 88 leiki með Keflavík í efstu deild og skorað í þeim 10 mörk. Þá hefur hún gert 23 mörk í 64 leikjum í 1. deild.