Úr Árbænum og á Akranes

Ómar Björn Stefánsson er kominn til ÍA.
Ómar Björn Stefánsson er kominn til ÍA. Ljósmynd/ÍA/Jón Gautur Hannesson

Knattspyrnumaðurinn Ómar Björn Stefánsson hefur gert þriggja ára samning við ÍA. Hann kemur til Skagamanna frá Fylki.

Ómar, sem er uppalinn Fylkismaður, hefur skorað þrjú mörk í 27 leikjum í efstu deild með Fylki og tvö mörk í 13 leikjum í 1. deild.

Fylkir er fallinn úr Bestu deildinni, þrátt fyrir að tvær umferðir séu enn eftir. ÍA er sem stendur í fimmta sæti með 37 stig og enn í baráttunni um Evrópusæti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert