KA og Vestri eigast við í 26. og næstsíðustu umferð Bestu deildar karla í knattspyrnu á Akureyri klukkan 14. Fylgst er með gangi mála í beinni textalýsingu á mbl.is.
Fyrir leik er KA í sjöunda sæti, efsta sæti neðri hlutans, með 31 stig en Vestri er í tíunda sæti með 25 stig, þremur stigum fyrir ofan fallsæti.