Þorsteinn tryggði HK sigur á síðustu sekúndum

Framarinn Kennie Chopart með boltann í leik liðanna í Kórnum …
Framarinn Kennie Chopart með boltann í leik liðanna í Kórnum í sumar. HK-ingurinn Brynjar Snær Pálsson verst. Ljósmynd/Kristinn Steinn

HK á enn möguleika á að halda sæti sínu í Bestu deild karla í fótbolta eftir dramatískan sigur gegn Fram, 2:1, í Kórnum í Kópavogi í kvöld.

Þorsteinn Aron Antonsson skoraði sigurmark HK á síðustu mínútu í uppbótartíma og hefur þar með skorað sigurmörk HK í öllum þremur leikjunum gegn Fram á þessu tímabili.

Til þess þarf HK jafntefli eða sigur gegn KR á Meistaravöllum í lokaumferðinni og treysta á að Vestri tapi eða geri jafntefli gegn Fylki á Ísafirði.

Vestri og HK eru bæði með 25 stig en markatala Vestramanna er 13 mörkum betri þannig að þeim dugar alltaf að gera það sama og HK í síðasta leiknum.

Atli Þór Jónasson fékk fyrsta opna færi leiksins fyrir HK á 15. mínútu þegar hann skaut yfir af markteig eftir fyrirgjöf Birnis Breka Burknasonar frá hægri.

Framarar komust yfir á 20. mínútu. Fred Saraiva komst að endamörkum vinstra megin og sendi þvert fyrir markið. Alex Freyr Elísson kom á ferðinni hægra megin í teignum og skoraði með viðstöðulausu skoti, 0:1.

HK-ingar voru fljótir að jafna því á 22. mínútu átti Ívar Örn Jónsson góða fyrirgjöf frá vinstri kantinum, Birnir Breki stakk sér fram og skoraði með skalla af markteig, 1:1.

HK fékk tvö góð færi til að ná forystunni í fyrri hálfleik. Ólafur Íshólm í marki Fram varði glæsilega skalla frá Eiði Gauta Sæbjörnssyni úr dauðafæri á markteig og Atli Þór Jónasson fékk óvænt og galopið færi á markteig eftir mistök í vörn Fram en fór illa að ráði sínu og skaut langt framhjá markinu.

Staðan var því 1:1 í hálfleik.

Framarar komust í hættulegt færi í snöggri sókn á 55. mínútu þegar Alex Freyr skaut hægra megin úr vítateignum rétt framhjá stönginni fjær.

Þeir bláklæddu fengu síðan sannkallað dauðafæri á 61. mínútu eftir flott spil en Christoffer Petersen í marki HK varði vel með fótunum frá Djenaro Daniels sem var nýkominn inn á sem varamaður.

Ólafur Íshólm bjargaði síðan Fram á ný með frábærri markvörslu á 73. mínútu þegar hann varði skalla Atla Hrafns Andrasonar af stuttu færi.

Framarar voru tvisvar nærri því að skora á 86. mínútu. Christoffer Petersen varði skalla Adams Arnar Arnarsonar í horn og upp úr horninu átti Guðmundur Magnússon skalla sem HK-ingar björguðu nánast á marklínu.

En í blálokin var það Þorsteinn Aron Antonsson sem tryggði HK sigurinn dýrmæta eftir aukaspyrnu frá Christoffer Petersen markverði, 2:1.

Lýsing uppfærist sjálfkrafa

Allar lýsingar í beinni

Aðrir virkir leikir

Liverpool 2:1 Chelsea opna
90. mín. Alexis Mac Allister (Liverpool) fær gult spjald 90+2 - Tekur Palmer niður og Chelsea fær aukaspyrnu á fínum stað á hægri kantinum.
Haukar 35:26 Cocks opna
60. mín. Leik lokið 9 marka sigur staðreynd. Vonum að það sé nóg fyrir seinni leikinn í Finnlandi næsta sunnudag.
Fylkir 0:1 KR opna
95. mín. Leik lokið Leik lýkur með útisigri Vesturbæinga, Fylkir 0 - KR 1.

Leiklýsing

HK 2:1 Fram opna loka
90. mín. Tryggvi Snær Geirsson (Fram) fer af velli
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert