Breiðablik fær 250 miða á Víkingsleikinn

Reikna má með troðfullri stúku og stæðum á Víkingsvellinum á …
Reikna má með troðfullri stúku og stæðum á Víkingsvellinum á sunnudagskvöldið. mbl.is/Eyþór Árnason

Breiðablik fær sérstaklega úthlutað 250 miðum á úrslitaleik Víkings og Breiðabliks í Bestu deild karla í fótbolta sem fram fer á Víkingsvellinum á sunnudagskvöldið.

Þetta kemur fram í tilkynningu Breiðabliks til félagsmanna á samfélagsmiðlum í kvöld.

Þar er sagt að töluvert færri en vilja muni komast að á leiknum en önnur miðasala sé í höndum Víkinga og hefjist á morgun, þriðjudag.

Um leið hvetja Blikar sitt fólk til að mæta í Smárann og horfa á leikinn þar á stórum skjá.

Þegar Víkingar urðu Íslandsmeistarar með sigri á Leikni í lokaumferðinni haustið 2021 var uppselt á Víkingsvöllinn og áhorfendur þar skráðir 2.023.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert