Kallar 18 ára leikmann Fram ræfil

Upp úr sauð í lok leiks HK og Fram.
Upp úr sauð í lok leiks HK og Fram. Ólafur Árdal

Knattspyrnumaðurinn Orri Sigurður Ómarsson, leikmaður Vals, er allt annað en sáttur með hinn 18 ára gamla Þorra Stefán Þorbjörnsson, leikmann Fram.

Upp úr sauð á milli leikmanna og þjálfara HK og Fram eftir leik liðanna í Bestu deildinni á sunnudag og í lok leiks sló Þorri derhúfu af höfðinu á Ómari Inga Guðmundssyni, þjálfara HK.

Orri er bróðir Ómars og hann tjáði sig um atvikið á samfélagsmiðlinum X og kallaði varnarmanninn unga ræfil.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert