Breyting á landsliðshópnum

Auður Sveinbjörnsdóttir Scheving er komin í hópinn í staðinn fyrir …
Auður Sveinbjörnsdóttir Scheving er komin í hópinn í staðinn fyrir Fanneyju Ingu. Eggert Jóhannesson

Þorsteinn Halldórsson, landsliðsþjálfari kvenna í fótbolta, hefur neyðst til að gera eina breytingu á íslenska hópnum fyrir vináttuleikina tvo gegn Bandaríkjunum.

Fanney Inga Birkisdóttir hlaut höfuðmeiðsli á æfingu íslenska liðsins og Auður Sveinbjörnsdóttir Scheving hefur verið kölluð inn í hópinn í hennar stað.

Fyrri leikurinn verður flautaður á í Austin í Texas hálftíma eftir miðnætti í nótt og sá seinni 21:30 á sunnudagskvöld í Nashville.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert