Snýr aftur í Bestu deildina

Heiðdís Lillýardóttir og Pauline Dudek eigast við í leik Breiðabliks …
Heiðdís Lillýardóttir og Pauline Dudek eigast við í leik Breiðabliks og París SG í Meistaradeildinni tímabilið 2021-22. mbl.is/Unnur Karen

Knattspyrnukonan Heiðdís Lillýardóttir stefnir á að snúa aftur í Bestu deildina á næsta keppnistímabili.

Það er fótbolti.net sem greinir frá þessu en Heiðdís, sem er 28 ára gömul, lék síðast með Breiðabliki. 

Hún hélt út í atvinnumennsku eftir tímabilið 2023 og gekk til liðs við Basel í Sviss en hún eignaðist sitt fyrsta barn í ágúst á þessu ári.

Alls á hún að baki 126 leiki í efstu deild með Selfoss og Breiðabliki þar sem hún hefur skorað fjögur mörk.

Hún hefur tvívegis orðið Íslandsmeistari með Breiðabliki og tvívegis bikarmeistari.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka