Ómar Ingi Guðmundsson er hættur þjálfun karlaliðs HK í fótbolta, en liðið féll á laugardag úr Bestu deildinni.
Ómar tók við HK í maí árið 2022 og kom HK upp í Bestu deildina og hélt því þar uppi í eitt tímabil.
Eftir harða fallbaráttu í ár urðu Ómar og HK-ingar að sætta sig við fall, eftir stórtap gegn KR, 7:0, í lokaumferðinni. HK bauð Ómari nýjan samning, en hann ákvað sjálfur að róa á önnur mið.
Áður en hann tók við sem aðalþjálfari var hann aðstoðarþjálfari Brynjars Bjarnar Gunnarssonar og þjálfari yngri flokka HK.
Tilkynning HK:
„Fyrr í kvöld varð ljóst að Ómar Ingi Guðmundsson mun ekki halda áfram þjálfun meistaraflokks karla í knattspyrnu, en samningur hans rann út eftir nýafstaðið tímabil. Unnið var að því að framlengja við hann en að eigin ósk ákvað hann að róa á önnur mið.
Stjórn knattspyrnudeildar þakkar Ómari Inga fyrir góðar stundir í Kórnum og ómetanlegt framlag til félagsins undanfarin ár. Ómar sem er svo sannarlega einn af dáðardrengjum HK hefur í gegnum árin unnið gífurlega gott starf og komið náið að uppgangi knattspyrnudeildar HK.
Við óskum Ómari velfarnaðar í komandi verkefnum og vonumst til að sjá hann áfram í einhverju hlutverki fyrir félagið næstu árin.
Leit er hafin að eftirmanni Ómars og mun stjórn deildarinnar vinna hart að því að fá inn þjálfara sem mun leiða áframhaldandi uppbyggingu og þróun liðsins með faglegum og metnaðarfullum hætti.“