Knattspyrnumaðurinn Sigurjón Rúnarsson er genginn til liðs við Fram frá Grindavík.
Frá þessu greindu Framarar í gærkvöldi en Sigurjón er 24 ára gamall miðvörður sem hefur allan sinn feril leikið með Grindavík.
Hann á að baki 175 leiki fyrir Grindavík í meistaraflokki og þar af 28 í efstu deild.