Knattspyrnumaðurinn Aron Þórður Albertsson hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við KR.
Aron Þórður, sem er 28 ára miðjumaður, gekk til liðs við KR frá Fram fyrir tímabilið 2022 og hefur síðan þá spilað 60 leiki fyrir liðið í efstu deild og skorað tvö mörk.
„Við erum ánægð að Aroni líði vel í Vesturbænum og vilji taka slaginn með okkur tvö ár í viðbót,“ sagði meðal annars í tilkynningu frá knattspyrnudeild KR.