Ómar ráðinn til KSÍ

Ómar Ingi Guðmundsson hætti störfum hjá HK fyrr í vikunni.
Ómar Ingi Guðmundsson hætti störfum hjá HK fyrr í vikunni. mbl.is/Ólafur Árdal

Knattspyrnusamband Íslands, KSÍ, hefur ráðið Ómar Inga Guðmundsson sem þjálfara U15-ára landsliðs karla, aðstoðarþjálfara U19-ára landsliðs karla og sem yfirmann hæfileikamótunar karla.

Ómar Ingi, sem er 38 ára gamall, lét af störfum hjá uppeldisfélagi sínu HK á dögunum eftir að hafa þjálfað meistaraflokk karla hjá félaginu frá árinu 2022.

Féll HK þá úr Bestu deildinni. Hann hefur lokið KSÍ A-gráðu í þjálfun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert