Knattspyrnukonan unga Helga Rut Einarsdóttir er gengin í raðir Breiðabliks frá Grindavík.
Þrátt fyrir að vera aðeins 17 ára gömul hefur Helga leikið 44 leiki með Grindavík í 1. deild og skorað í þeim tvö mörk.
Hún gerði eitt mark í 17 leikjum með Grindavík á síðustu leiktíð. Helga hefur einnig leikið með yngri landsliðum Íslands, alls 16 leiki.