Tilkynntu framlengingu með skemmtilegu myndskeiði

Steinþór Már Auðunsson.
Steinþór Már Auðunsson. mbl.is/Óttar Geirsson

Steinþór Már Auðunsson, markvörður bikarmeistara KA í knattspyrnu, hefur skrifað undir nýjan eins árs samning við félagið. Er hann nú samningsbundinn út tímabilið 2025.

KA tilkynnti um framlenginguna með skemmtilegu myndskeiði þar sem Stubbarnir (e. Teletubbies) eru í aðalhlutverki, en gælunafn Steinþórs er einmitt Stubbur.

Hann er 34 ára gamall, ólst upp hjá KA og hefur leikið 69 leiki fyrir liðið í efstu deild frá því að Steinþór Már sneri aftur til uppeldisfélagsins fyrir tímabilið 2021.

Áður hafði hann leikið 172 leiki í neðri deildum með fjórum liðum á Norðurlandi og skorað fjögur mörk, en ásamt því að vera sjálfur vítabani er Steinþór Már liðtæk vítaskytta.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert