Knattspyrnukonan Emilía Ingvarsdóttir er gengin til liðs við KR á nýjan leik.
Þetta tilkynnti félagið á samfélagsmiðlum sínum í dag en Emilía, sem er fædd árið 2002, skrifað undir tveggja ára samning við Vesturbæjarfélagið.
Miðvörðurinn er uppalin hjá KR en lék með Fram tímabilin 2022 og 2023. Hún lék með KR á láni frá Fram á nýliðnu keppnistímabili.
KR hafnaði í 2. sæti 2. deildarinnar á síðustu leiktíð og leikur því í 1. deildinni næsta sumar.